Grima

Tuesday, September 07, 2004

Lilypie Baby Days

Tuesday, May 20, 2003

Þá er ég búin með námið, ég er svo glöð. Ég er líka búin að halda upp á það :) Þetta nám var sko ekki tekið út með sældinni, ég held að ég hafi bara ekki taugar í þetta. Ég fæ diplómu fyrir það sem ég er búin með og það er gott. Þá er það frá. Ég get alltaf farið aftur ef ég hef þörf fyrir það og klárað masterinn. Þessa stundina kemur það ekki til greina. Næsti vetur verður rólegri, þá verð ég bara að kenna og held áfram með þróunarverkefnið mitt, ég fékk styrk í það. Veðrið er svo dásamlegt úti, ég verð bara að stinga af heim, kaupa sumarblóm og koma fyrir á frönsku svölunum mínum. Ég er kát, glöð og hamingjusöm.

Thursday, May 08, 2003

Þetta er ég!!!!!

Flokkur Samsvörun
Sjálfstæðisflokkur (D) 81%
Frjálslyndi flokkurinn (F) 77%
Nýtt afl (N) 75%
Framsóknarflokkur (B) 71%
Samfylkingin (S) 70%
Vinstrihreyfingin - grænt framboð (U) 56%

Wednesday, May 07, 2003

Já, já, já, ég datt út!!!!! Er enn að vinna í verkefninu fer í aukatíma á morgun :-) Ætla að fá að vita hvernig ég get breytt ör í hendi án þess að vera á netinu. Akkúrat þessa stundina finnst mér þetta verkefni hálfgert klúður. Ég rata varla sjálf um skólann í forritinu þó ég sé búin að vera þarna meira og minna frá sex ára aldri. Við vorum öll (ég, Rakel, Óskar og Tóti + börn) hjá mömmu og pabba í mat. Umræðuefnið var, sveiflur í skoðanakönnunum. Jæja, ég ætla að fara að sofa, zzzzzzzzzzzzzzzzzzzz

Friday, April 18, 2003

Ég bauð Sigga Atla í mat annars hefði hann bara fengið hrísgrjón. Hann var agalega svangur, fékk bara köku í gær og ekkert annað. Ég er búin með flæðiritið og koma build up tölunni í Mediatornum upp í 154. Er ekki alveg að tóna við þetta forrit. Skil ekki afhverrju myndirnar mínar eru hlussustórar þó ég sé búin að ákvarða stærðina á skjáuppl. strax í upphafi. Ég hélt að forritið mundi þjappa og pakka fyrir mig. Ef ég þarf að vera með tvö sett af öllum myndum, þá gef ég upp öndina. Annað, hringmyndin mín er bara rétt mellufær. Skólinn er hannaður þannig, að þetta er bara tricky, það eru þiljur á veggjunum, það er rauð breið rönd í dúknum meðfram öllum veggjum, húsnæðið er ekki ferningur, þannig að fjarlægðin er mismunandi og það er bara rosalega erfitt að gera samsetningarnar ósýnilegar. Ég ætla að minnka gæðin og sjá hvað það gerir. Ég er ekki glöð.

Fór í partí til Svövu í gær, ótrúlegt stuð hjá okkur Ingibjörgu. Svava á allar LP-plöturnar sínar ennþá og við tókum nostalgíu-syrpu. Man t.d. einhver eftir ASIA? Eða: "You and me aint no superstars, what we are.....etc. Hver er Cosma Shiva? Það var alveg farið alla leið. Við Rakel ætlum kannski að borða saman á eftir. Þangað til ætla ég að ..............................LÆRA!!!!!!! Og íhuga syndir mannanna og kannski oggupoggu mínar eigin:).

Wednesday, April 16, 2003

Ég fór og fékk digital upptökutækið lánað, keypti mér mini-cd og svo kom Sveinn færandi hendi með þrífót, er lífið ekki dásamlegt ;).

Tuesday, April 15, 2003

Ég fór eldhress, í morgun, út í Melaskóla að hjálpa Ragnheiði Ben. með Ritþjálfana. Hitti svo Svein á Mímisbar :) Við fórum yfir stöðu mála. Hann lét mig hafa nokkur forrit og lánaði mér input/output-snúru. Það var frábært að hitta Svein, hann er svo drífandi. Ég ætla að fara upp í KHI og fá lánaðann MP3, plata Bjössa og Stefaníu til að lána mér sætu raddirnar sínar til að nota á CDinn. Ég gerði eina misheppnaða hringmynd, verð að fá þrífót, samskeytin voru skökk. Hélt áfram með flæðiritið, það er orðið flennistórt. Það er eitt við margmiðlun sem er létt óþolandi, það er hvað þarf mikið af aukaútbúnaði og alls kyns forrit. Bestu tíðindi dagsins, skil frestast til 18. maí. Hin tíðindin: Hver nemandi heldur 80 mín. kynningu á verkefninu sínu í síðustu staðbundnu lotunni 18. maí, mmmmmmmmm.

Jæja, nú ætla ég að skrifa ötullega um námsframvindu, það virkaði svo vel hjá Salvöru um árið. Er að prófa Smart-Draw til að gera flæðirit um verkefnið. Það kemur bara nokkuð vel út. Þetta er sáraeinfalt forrit, drag and drop. Ég náði mér í nýtt FIREWORKS, sem ég get notað að vild í 30 daga :) Splunku ný útgáfa. Var að byrja á að minnka allar 100.000 myndirnar sem fara í þetta. Ég ætla líka að gera þær óskýrar því skólinn minn er svolítið illa farinn. Ég fer að hitta Svein Haga á morgun, það er eins gott að vera búin að koma einhverju í verk. Ég hef örlitlar áhyggjur af öllu myndaflóðinu, ekki einu sinni litli sæti minniskubburinn minn þoldi álagið.